Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 26. júlí 2014 16:40
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: Sky 
Griezmann til Atletico?
Mynd: Getty Images
Antoine Griezmann, leikmaður Real Sociedad er að öllum líkindum á förum frá félaginu en í dag er greint frá því að Atletico Madrid séu líklegastir til að krækja í kappan.

Hann spilaði vel á seinasta tímabili og skoraði 16 mörk fyrir Sociedad og hefur verið orðaður við fullt af liðum, en hann spilaði einnig vel með franska landsliðinu á HM.

Chris Spicer hjá Sky Bet telur að ekki sé líklegt að Griezmann færi sig til London en hann hefur verið orðaður við öll þrjú helstu lið Lundúna í sumar, Arsenal, Tottenham og Chelsea, heldur sé lang líklegast að hann gangi til liðs við Spánarmeistarana í Atletico.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner