Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 26. júlí 2014 16:43
Valur Páll Eiríksson
Þorsteinn Halldórs: Er maður ekki alltaf ungur í anda?
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari KV í dag.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari KV í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari 2. flokks KR, stýrði KV í 3-2 sigri þeirra á Tindastóli í dag þar sem bæði Halldór Árnason og Páll Kristjánsson, þjálfarar KV voru í banni eftir umtalaðan leik þeirra gegn HK í síðustu umferð.

Þorsteinn var tekinn tali eftir leik.

,,Þrjú stig eru það sem telur, þó að leikurinn hafi e.t.v. ekki verið glæsilegur þá eru það stigin sem skipta máli."

,,Mér fannst við allt í lagi í fyrri hálfleiknum á köflum en í seinni hálfleiknum heilt yfir slakir. Við héldum bolta illa, og vorum að tapa honum á slæmum stöðum og illa skipulagðir í varnarleiknum."

Bæði mörk Tindastóls komu upp úr föstum leikatriðum, sem er ekki algengt hjá Vesturbæingum að fá á sig.

,,Mér skilst að þeir hafi ekki lagt það í vana sinn, það er eitthvað sem að breyttist með komu minni."

(Innsk. blaðamanns) Þannig að þú tekur þetta á þig?

,,Já ég tek þetta á mig en þá kemur þetta ekkert fyrir aftur."

Páll Kristjánsson nefndi þá í viðtali eftir leikinn við HK að hellingur ungra og efnilegra þjálfara í Vesturbænum sem væru reiðubúnir að stíga upp í þeirra stað. Þorsteinn var spurður hvort hann teldi það eiga við um sig.

,,Ja, ég veit það ekki. Er maður ekki alltaf ungur í anda?"
Athugasemdir
banner
banner