Aalesund og Lilleström áttust við í dag í norsku deildinni og enduðu leikar 1-1.
Allt leit út fyrir að Aalesund væru að fara með sigur af hólmi en Sakari Mattila kom þeim yfir eftir rúmlega klukkutíma leik.
Þannig var staðan allt fram að loka mínútunni og þá jafnaði okkar maður, Pálmi Rafn Pálmson og þar við sat.
Lilleström eru í 6. sæti deildarinnar með 24 stig eftir 17 leiki en Aalesund eru í því 13. með 15 stig og væntanlega mikil fallbarátta framundan.
Athugasemdir