Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 28. júlí 2014 13:30
Magnús Már Einarsson
Davíð Kristján framlengir við Breiðablik
Davíð Kristján Ólafsson.
Davíð Kristján Ólafsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Kristján Ólafsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik en þetta kemur fram á blikar.is.

Þessi U19 ára landsliðsmaður var á dögunum á reynslu hjá AZ Alkmaar í Hollandi.

Davíð Kristján er fæddur árið 1995 en hann hefur leikið bæði á vinstri kanti og í bakverði.

Í sumar hefur hann spilað fimm leiki í Pepsi-deildinni og skorað eitt mark með fallegu skoti gegn Fjölni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner