Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 28. júlí 2014 13:00
Magnús Már Einarsson
Harry Redknapp: Remy verður hjá QPR
Remy er mættur aftur í treyju QPR.
Remy er mættur aftur í treyju QPR.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp, stjóri QPR, segir að Loic Remy muni spila með liðinu í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

Remy var á láni hjá Newcastle á síðasta tímabili þar sem hann skoraði 14 mörk.

Liverpool hafði náð samkomulagi um að kaupa Remy á 8,5 milljónir punda í sumar en ekkert verður af þeim kaupum þar sem Frakkinn stóðst ekki læknisskoðun.

Remy mun því leika með QPR á komandi tímabili.

,,Loic Remy mun snúa aftur til QPR. Hann er stórkostlegur framherji," sagði Redknapp.
Athugasemdir
banner
banner
banner