Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, var afar vonsvikinn eftir 2-1 tapið gegn Selfossi fyrr í kvöld. Þróttarar sitja áfram í 3. sæti deildarinnar en eru nú 3 stigum á eftir ÍA sem eru í 2. sæti og unnu sinn leik í kvöld.
„Við erum mjög vonsviknir. Leikurinn fór ekki eins og við vildum. Selfoss fær samt hrós því að þeir mættu vel skipulagðir og héldu sig við skipulagið. Vel gert hjá þeim.“
„Þetta var einstefna í fyrri hálfleik. Þeir skoruðu úr föstu leikatriði sem við vissum að þeir væru öflugir í. Við náðum ekki að bregðast við því. Við héldum boltanum vel í gegnum allan leikinn en nýttum okkur það ekki. Það er hægt að tala um hvað lið eru mikið með boltann en þegar maður nýtir það ekki þá verður maður að spyrja sig af hverju það er.“
„Það vantaði ekkert er snertir ástríðu og ákveðni. Strákarnir gáfu sig alla í þetta. Selfoss-liðið var mjög þétt og mjög vel skipulagt og það hefði þurft eitthvað sérstakt til að brjóta það niður. Mér fannst að ef við hefðum komist í 2-1 þá hefðum við unnið leikinn frekar þægilega. Svona er fótboltinn. Þeir skora úr föstu leikatriði og þannig var það.“
Ákveðinn vendipunktur varð í leiknum á 67. mínútu en þá var Halli Hallssyni vikið af velli. Þróttarar voru afar ósáttir við dóminn. Við spurðum Gregg út í uppákomuna.
„Ég talaði við Halla. Ég sá ekkert svo ég gat ekkert sagt við dómarann. Halli segist ekki hafa snert hann og ef hann segir það þá treysti ég því og þá hefur dómarinn tekið hræðilega ákvörðun. Fyrir utan það þá gera dómarar mistök.“
Björgólfur Takefusa er kominn aftur til Þróttar eftir að hafa reynt fyrir sér á öðrum vígstöðvum undanfarinn áratug. Bjöggi byrjaði leikinn í dag og Gregg er ánægður með að fá slíkan reynslubolta í hópinn.
„Við erum mjög ánægðir með að fá hann. Hann er reynslumikill og hefur skorað mikið af mörkum. Í leikjum eins og í dag hefði hann kannski nýst betur með því að koma inn af bekknum. Hann þarf nokkra leiki til að koma sér í sitt besta leikform en við erum mjög ánægðir með að fá hann.“
„Við höfum staðið okkur mjög vel að undanförnu og við viljum halda því áfram. Ég sagði við strákunum að skoða heildarmyndina og sjá hvað við höfum staðið okkur vel. Við sjáumst svo aftur á mánudaginn og þá vil ég hitta þá hungraða í að komast aftur á sigurbraut, sagði Gregg meðal annars en hægt er að horfa á allt viðtalið við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir