Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 31. júlí 2014 12:30
Magnús Már Einarsson
Ravel Morrison kærður fyrir að ráðast á tvær konur
Ravel Morrison.
Ravel Morrison.
Mynd: Getty Images
Ravel Morrison, miðjumaður West Ham, hefur verið ákærður fyrir að ráðast á tvær konur.

Hinn 21 árs gamli Morrison réðst á tvær konur, 19 og 39 ára, fyrir utan bar í Manchester klukkan 3:20 aðfaranótt sunnudags.

Morrison þarf að mæta fyrir rétt síðar í dag vegna málsins.

Morrison kom til West Ham frá Manchester United í janúar 2012 en hann hefur síðan þá farið til Birmingham og QPR á láni.

Óvissa hefur verið um framtíð Morrison hjá West Ham og þessi ákæra gerir stöðu hans hjá félaginu ennþá erfiðari.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner