Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 31. júlí 2014 22:00
Daníel Freyr Jónsson
Ben Arfa finnur fyrir niðurlægingu hjá Newcastle
Hatem Ben Arfa.
Hatem Ben Arfa.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður vængmannsins Hatem Ben Arfa, leikmanns Newcastle, segir skjólfstæðing sinn hafa verið niðurlægðan hjá félaginu.

Ben Arfa hefur verið látinn æfa með varaliði félagsins í sumar eftir að hann snéri til baka úr sumarfríi of þungur. Hafði hann þyngst um 1,5 kíló og var hann þar að auki sektaður fyrir það.

,,Hatem hefur gert allt fyrir Newcastle, allt hefur verið reynt til að leysa vandann. Við erum í stöðu sem virðist ekki vera til lausn fyrir," sagði Michel Ouazine, umboðsmaður Ben Arfa.

,,Hann er einfaldlega að sinna starfi sínu Hann æfir vel, honum finnst gaman að æfa með varaliðinu þar sem hann er með frábæran þjálfara, Peter Beardsley."

,,Þetta er ósanngjarnt og niðurlægjandi. Hatem fór í frí og var með einkaþjálfara til að undirbúa sig fyrir tímabilið. Þessi 1,5kg er eitt kíló af vöðvum og 500 grömm af fitu."
Athugasemdir
banner
banner
banner