Tífaldir Evrópumeistarar Real Madrid mæta þreföludm Evrópumeisturum Manchester United í sannkölluðum stórleik í Bandaríkjunum á laugardagskvöld.
Um er að ræða leik á Champions Cup æfingamótinu og verður þetta lokaleikur A-riðils.
Um er að ræða leik á Champions Cup æfingamótinu og verður þetta lokaleikur A-riðils.
Leikurinn fer fram á Michigan-leikvanginum og hafa aðstandendur mótsins gefið það út að uppselt sé á leikinn. Það þýðir að rúmlega 109 þúsund manns munu sjá þessu tvö stærstu félög heims leiða saman hesta sína.
Michigan-leikvangurinn er sá stærsti í Norður-Ameríku og sá þriðji stærsti í heiminum.
Met verður sett á leiknum þar sem aldrei áður hafa jafn margir áhorfendur mætt á knattspyrnuleik í Bandaríkjunum, en íþróttin hefur verið í miklum uppgangi þar í landi undanfarin ár.
Athugasemdir