Southampton hefur áhuga á að fá til sín framherjann Javier Hernandez frá Manchester United.
Frá þessu greinir fréttastofa Sky Sports, en framtíð Hernandez hjá United er óráðin. Hann er aftarlega í goggunarröðinni og hefur gefið í skyn að hann gæti yfirgefið félagið í sumar.
Frá þessu greinir fréttastofa Sky Sports, en framtíð Hernandez hjá United er óráðin. Hann er aftarlega í goggunarröðinni og hefur gefið í skyn að hann gæti yfirgefið félagið í sumar.
Southampton þarf nauðsynlega á liðsstyrk að halda eftir að hafa selt sína helstu leikmenn í sumar fyrir háar fjárhæðir.
Félagið hefur þó fengið til sín þá Graziano Pelle og Ryan Bertrand, en fastlega er búist við að Ronald Koeman, stjóri liðsins, verður afar öflugur á leikmannamarkaðinum í ágúst.
Athugasemdir