Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 01. ágúst 2014 07:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: BBC 
Loic Remy gæti endað hjá Newcastle
Alan Pardew vill kaupa Loic Remy.
Alan Pardew vill kaupa Loic Remy.
Mynd: Getty Images
Alan Pardew, stjóri Newcastle, hefur enn áhuga á að kaupa framherjann Loic Remy frá QPR.

Remy lék sem lánsmaður með Newcastle á síðustu leiktíð og skoraði þá 14 mörk í úrvalsdeildinni. Það góða form vakti athygli stærri liða og var hann við það að ganga í raðir Liverpool á dögunum en féll á læknisskoðun.

,,Þetta er einfaldur samningur ef Loic og QPR ákveða að semja við okkur," sagði Pardew við BBC.

,,Staðreyndirnar tala fyrir sig. Stuðningsmennirnir elskuðu hann og persónulega tel ég þetta vera frábæran stað fyrir hann."

Pardew hefur verið iðinn á leikmannamarkaðinum í sumar og er þegar búinn að fá sex nýja leikmenn til Newcastle.
Athugasemdir
banner
banner
banner