Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. ágúst 2014 13:26
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: Crystal Palace heimasíðan 
Hangeland til Crystal Palace (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Crystal Palace hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni, en þeir hafa fengið Brede Hangeland frá Fulham.

Hangeland er 33 ára og yfirgaf Fulham í lok síðasta tímabils eftir að Fulham féll úr ensku úrvalsdeildinni en hann hafði verið þar í sex og hálft ár.

,,Ég er í skýjunum með að vera hér. Ég hlakka til að hjálpa til og að gera mitt besta fyrir klúbbinn."

,,Ég er af gamla skólanum sem leikmaður, ég vil bara vera hluti af góðum hópi leikmanna, vinna fyrir góðan stjóra, leggja hart að mér og keyra í rétta átt."

,,Palace er hefðbundið félag, mér fannst andrúmsloftið hér vera frábært og auðvitað höfðu aðdáendurnir fullt af hlutum til að vera ánægðir með á seinustu leiktíð"

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner