fös 01. ágúst 2014 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Swansea hefur áhuga á Kyle Naughton
Kyle Naughton í leik með Tottenham.
Kyle Naughton í leik með Tottenham.
Mynd: Getty Images
Garry Monk, þjálfari Swansea hefur staðfest að hann hafi áhuga á Kyle Naughton, leikmanni Tottenham en tekur fram að Naughton sé aðeins einn af mörgum sem félagið er að skoða.

Swansea ku vilja styrkja varnarlínu sína eftir að Ben Davies fór til Tottenham.

Monk segir að ekkert tilboð hafi verið gert í Naughton, né aðra leikmenn. Monk viðurkennir að hann hafi ekki mikið fé til leikmannakaupa og fer hann því varlega.

,,Við erum að skoða marga leikmenn. Það mun verða mikið um orðróma, hér og þar. Það er búið að orða okkur við alla leikmenn í sumar," sagði Monk við dagblað í Wales.

,,Við erum að skoða Naughton, en við erum að skoða marga leikmenn. Við erum að tala um leikmann sem er hjá öðru félagi, ég vill ekki sýna neina óvirðingu við neinn."

,,Þetta er bara ég að skoða. Við höfum ekki boðið í neinn annan leikmann. Við verðum að finna réttu leikmennina á réttum kjörum."

,,Ég er ánægður með leikmannahópinn en við þurfum ennþá að gera meira. Við getum ekki keypt leikmenn í allar stöður, við verðum að forgangsraða og ég er búinn að vera að því síðan ég kom," sagði Monk að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner