Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 01. ágúst 2014 23:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Iago Falque til Genoa (Staðfest)
Iago Falque í leik með Tottenham.
Iago Falque í leik með Tottenham.
Mynd: Getty Images
Iago Falque hefur yfirgefið herbúðir Tottenham fyrir ítalska liðið Genoa fyrir um 4 milljónir punda.

Falque hefur verið hjá Spurs síðan 2012 en hefur verið á láni nær allan tímann.

Þessi fyrrverandi leikmaður Juventus hefur verið hjá liðum eins og Southampton, Almeria og Rayo Vallecano.

Hann spilaði aðeins einn deildarleik fyrir liðið er hann kom inná sem varamaður gegn Everton í desember 2012.

Spánverjinn er fjórði leikmaðurinn sem yfirgefur White Hart Lane í sumar en Jake Livermore, Heurelho Gomes og Gylfi Sigurðsson hafa róið á önnur mið.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner