Daníel Laxdal, varnarmaður Stjörnunnar, var svekktur eftir 3-0 tapið gegn Inter í kvöld.
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 3 Inter
,,Það er svekkjandi að fara með 3-0 inn í búningsklefann en þetta er fáránlega gott lið. Mér fannst við ná að halda þeim inn í skefjum og það er svekkjandi að fá á sig svona klaufaleg mörk," sagði Daníel eftir leik.
,,Þeir eru atvinnumenn í knattspyrnu og flestir landsliðsmenn. Við reyndum bara að gera eins og við gátum."
Stemningin var flott í Laugardalnum í kvöld og Daníel var ánægður með stuðninginn.
,,Ég vil hrósa Silfurskeiðinni og áhorfendum. Það var frábær stemning og frábært að spila í flóðljósunum hérna."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir