Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fös 22. ágúst 2014 10:30
Magnús Már Einarsson
Paul Gascoigne lítur skelfilega út
Mynd: Netið
Ensk blöð birta í dag myndir af Paul Gascoigne sem lítur vægast sagt skelfilega út þessa dagana.

Gascoigne hefur lengi átt við áfengisvandamál að stríða og hann var lagður inn á spítala í gær.

Gasocigne fannst þá liggjandi fyrir utan heimili sitt með gin flösku í hendinni.

Hinn 47 ára gamli Gascoigne átti litríkan feril þar sem hann spilaði 57 landsleiki með enska landsliðinu.

Í gær bárust fréttir af því að Gascoigne ætlaði að taka fram skóna og spila í ensku sunnudagsdeildinni en ljóst er að það mun ekki gerast á næstunni.

Englendingar hafa miklar áhyggjur af heilsufari Gascoigne en hann var mjög vinsæll sem leikmaður á sínum tíma.
Athugasemdir
banner
banner