Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 22. ágúst 2014 15:45
Elvar Geir Magnússon
Marca: Man Utd býður 56 milljónir punda í Di Maria
Di Maria lætur vaða á markið.
Di Maria lætur vaða á markið.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria vill yfirgefa herbúðir Real Madrid en hann hefur verið orðaður við Manchester United.

Spænska blaðið Marca segir að United sé að undirbúa 56 milljóna punda boð í leikmanninn.

Di Maria er utan hóps í kvöld þegar Real Madrid mætir Atletico Madrid í spænska meistaraleiknum en á Spáni eru leiknir tveir leikir og er staðan 1-1 eftir þann fyrri.

Sú staðreynd að Di Maria er ekki með er talin auka líkurnar á því að hann sé á förum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner