,,Við leggjum þetta upp eins og venjulegan úrslitaleik. Þetta verður pottþétt hörkuleikur og skemmtilegur," segir Ásgerður Stefanía Baldursdóttir fyrirliði Stjörnunnar um bikarúrslitaleikinn gegn Selfyssingum á morgun.
Stjarnan hefur verið með yfirburði í Pepsi-deild kvenna í sumar en Ásgerður býst við hörkuleik.
,,Deildin skiptir nákvæmlega engu máli í þessum leik. Þetta er úrslitaleikur og þetta verður hörkuleikur."
Stuðningsmenn Stjörnunnar voru margir hverjir á San Siro á Ítalíu í gærkvöldi en Ásgerður vonar að þeir skili sér á leikinn á Laugardalsvelli á morgun.
,,Þeir lenda á föstudaginn en ég hef heyrt að þeir ætli að hittast snemma á laugaradginn og mæta í stúkuna. Ég býst ekki við öðru en að fá góðan stuðning,"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir