fim 28. ágúst 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Holtby gæti farið frá Tottenham áður en glugginn lokar
Lewis Holtby.
Lewis Holtby.
Mynd: Getty Images
Lewis Holtby gæti yfirgefið herbúðir Tottenham áður en félagaskiptaglugginn lokar á mánudag.

Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur verið orðaður við Hamburg að undanförnu.

,,Ég er ungur leikmaður og ég vil alltaf spila. Það er mjög mikilvægt fyrir mig til að bæta mig," sagði Holtby.

Holtby var í láni hjá Fulham síðari hlutann á síðasta tímabili en hann kom til Tottenham frá Schalke í janúar árið 2013.
Athugasemdir
banner
banner