Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fös 29. ágúst 2014 15:30
Elvar Geir Magnússon
Hodgson hafði líka áhyggjur af standinu á Shaw
Shaw á æfingu Manchester United.
Shaw á æfingu Manchester United.
Mynd: Getty Images
Roy Hodgson, þjálfari enska landsliðsins, segist hafa haft áhyggjur af líkamlegu ástandi Luke Shaw áður en Louis van Gaal gagnrýndi leikmanninn opinberlega.

Van Gaal sagði að þessi 19 ára vinstri bakvörður hafi einfaldlega ekki verið í nægilega góðu formi í æfingaferð Manchester United fyrir tímabilið.

„Þetta var nefnt við Shaw nokkrum sinnum kringum HM, þar á meðal af mér og sjúkraþjálfaranum Gary Lewin," segir Hodgson.

Shaw var settur í sérþjálfun fyrir tímabilið en hann er sem stendur frá vegna meiðsla aftan í læri. Hann var keyptur á 27 milljónir punda frá Southampton í sumar.

„Hann virtist ekki eiga í nein vandræðum með líkamlegan þátt leiksins þegar hann var hjá Southampton," segir Hodgson.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner