Spænska landsliðið mætir Frakklandi í æfingaleik 4. september og svo Makedóníu fjórum dögum síðar í sínum fyrsta leik í undankeppni EM.
Vicente Del Bosque hefur valið ný andlit í hópinn fyrir þessa leiki.
Vicente Del Bosque hefur valið ný andlit í hópinn fyrir þessa leiki.
Kiko Casilla, markvörður Espanyol, Mikel San Jose og Ander Iturraspe hjá Athletic Bilbao og Paco Alcacer hjá Valencia eru meðal þeirra sem valdir voru í hópinn.
Reynslumeiri menn á borð við Iker Casillas, Sergio Ramos, Sergio Busquets, Cesc Fabregas, David Silva og Andres Iniesta eru einnig valdir en ekkert pláss er fyrir Gerard Pique.
Markverðir: Iker Casillas, David de Gea, Kiko Casilla
Varnarmenn: Dani Carvajal, Juanfran, Sergio Ramos, Mikel San Jose, Raul Albiol, Marc Bartra, Jordi Alba, Cesar Azpilicueta
Miðjumenn: Sergio Busquets, Santi Cazorla, Cesc Fabregas, Ander Iturraspe, Pedro, Isco, David Silva, Andres Iniesta, Koke, Raul Garcia
Framherjar: Diego Costa, Paco Alcacer
Athugasemdir