Ejub þjálfari Víkinga var á því að jafntefli hafi verið sanngjörn úrslit úr leik þeirra við Leikni í kvöld.
"Leikurinn var erfiður, bæði lið vildu vinna og hvorugt tapa. Svolítið safe."
"Leikurinn var erfiður, bæði lið vildu vinna og hvorugt tapa. Svolítið safe."
Víkingar gerðu eilítið meira til að reyna að setja sigurmark en það tókst þó ekki.
"Leiknir er gott lið sem verst stundum á mörgum mönnum. Ég var að vona við myndum kannski skora eitt í lokin en það gekk ekki í dag"
"Þeir pressuðu okkur hátt og leyfðu okkur ekki að spila okkar leik. Þetta var vel spilaður og taktískur leikur".
Hvernig metur hann stöðuna í deildinni eftir þennan leik.
"ÍA og Leiknir eru komnir upp, við getum orðað það þannig."
Beðist er velvirðingar á því að af einhverjum ástæðum detta spurningar út hjá spyrli en svör Ejub heyrast greinilega og í viðtalinu fjallar hann um framhaldið hjá liðinu og sumarið almennt.
Athugasemdir