Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 01. september 2014 09:45
Magnús Már Einarsson
Micah Richards á leið til Fiorentina
Richards er harður í horn að taka.
Richards er harður í horn að taka.
Mynd: Getty Images
Micah Richards, varnarmaður Manchester City, er á leið til Fiorentina á Ítalíu.

Richards mun fara til Fiorentina á láni út tímabilið en hann er mættur til Ítalíu til að fara í læknisskoðun.

Þessi 26 ára gamli leikmaður er ekki inni í myndinni hjá Manchester City en bæði Pablo Zabaleta og Bacary Sagna eru á undan honum í röðinni.

West Ham hafði einnig áhuga á Richards en launakröfur hans þóttu of háar.
Athugasemdir
banner
banner
banner