Crystal Palace hefur fengið til sín framherjann Kevin Doyle frá Wolves á lánssamningi út árið.
Hinn þrítugi Doyle þekkir vel til í úrvalsdeildinni, en hann hefur leikið fjölmarga leiki í deildinni með bæði Wolves og Reading.
Doyle er írskur landsliðsmaður og hefur hann leikið á Englandi frá árinu 2006. Hann kom þá til Reading frá Cork áður en hann gekk í raðir Wolves árið 2009.
Athugasemdir