Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ fundaði í dag líkt og venjan er á þriðjudögum en þrír leikmenn úr Pepsi-deild karla voru þar úrskurðaðir í eins leiks bann.
KR-ingarnir Grétar Sigfinnur Sigurðarson og Kjartan Henry Finnbogason voru úrskurðaðir í bann. Kjartan Henry hefur hvort sem er yfirgefið KR og samið við Horsens í Danmörku.
KR-ingarnir Grétar Sigfinnur Sigurðarson og Kjartan Henry Finnbogason voru úrskurðaðir í bann. Kjartan Henry hefur hvort sem er yfirgefið KR og samið við Horsens í Danmörku.
Grétar verður hinsvegar í banni í leik gegn Fylki þann 14. september.
Jóhann Helgi Hannesson verður fjarri góðu gamni hjá Þór þegar Akureyrarliðið fær FH í heimsókn 14. september. FH er í baráttu um Íslandmeistaratitilinn en Þórsarar eiga veika von um að halda sæti sínu.
Í 1. deildinni var Fannar Arnarsson, miðjumaður toppliðs Leiknis, úrskurðaður í bann. Hann verður þó með Leikni gegn Þrótti á fimmtudag þar sem liðið getur innsiglað sæti sitt í Pepsi-deildinni. Hann tekur út bannið í umferðinni á eftir þegar leikið verður gegn HK.
Í þeim leik verður Atli Valsson, leikmaður HK, einnig í banni en hann er á leiðinni í tveggja leikja bann eftir að hafa fengið rautt í síðasta leik. Hann átti eftir að taka út bann vegna uppsafnaðra áminninga.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir