Íslenska landsliðið hittist á Kópavogsvelli í kvöld og hóf undirbúning sinn fyrir þetta krefjandi verkefni. Fótbolti.net heyrði í Heimi Hallgrímssyni, öðrum landsliðsþjálfaranna, sem er spenntur fyrir leiknum og segir menn vera í góðu standi.
,,Mér sýnist staðan vera nokkuð góð. Kolbeinn er aðeins með í ökklanum, sem er samt ekki neitt, og sama með Hannes, við hvíldum þá í dag. Það er engin ástæða til að vera með æsing, það er vika í leik,"
,,Svo tók Raggi (Ragnar Sigurðsson) upp á því að láta rífa úr sér endajaxl, þannig að hann fékk bara frí á þessari æfingu. Ég fór reyndar ekki í það verk, en það hefði verið gaman samt. Að sjá hvað hann er harður."
Þá ræddi Heimir einnig um undirbúninginn fyrir Tyrklandsleikinn, en fyrstu dagana fá leikmenn að vera með fjölskyldu og vinum og þurfa ekki að mæta á hótelið fyrr en eftir nokkra daga.
Athugasemdir