Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   þri 02. september 2014 22:30
Alexander Freyr Tamimi
Aron Einar að jafna sig á meiðslum: ,,Verð klár í leikinn"
Aron Einar verður klár fyrir Tyrkina.
Aron Einar verður klár fyrir Tyrkina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið mætir Tyrklandi næstkomandi þriðjudag í undankeppni EM 2016 á Laugardalsvelli, en þetta verður fyrsti leikur liðsins í keppninni.

Strákarnir okkar voru mættir á landsliðsæfingu á Kópavogsvelli í kvöld og er undirbúningurinn því formlega hafinn.

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, ræddi við fjölmiðla í dag, en hann er að jafna sig af meiðslum og verður klár í slaginn.

,,Það er smá í ökklanum, en ekkert til þess að hafa áhyggjur af, ekki fyrir leikinn. Það er nógur tími. Ég meiddist aðeins gegn Wolves um þarsíðustu helgi og var ekki með um helgina á móti Fulham, en ég er að verða góður. Ég æfði á föstudag og laugardag og aðeins í dag, ég verð klár fyrir leikinn," sagði Aron Einar.

Leikurinn gegn Tyrkjum leggst vel í Aron og býst hann þó ekki við auðveldu verkefni.

,,Þetta leggst mjög vel í mig. Þetta er mjög sterkt lið sem spilar erfiðan sóknarbolta og sækir á mörgum mönnum. Þeir eru með mikið af fyrirgjöfum, en það ætti að henta okkur. Við erum með sterka varnarmenn sem geta skallað boltann í burtu," sagði Aron.
Athugasemdir
banner
banner
banner