sun 08. ágúst 2004 12:39
Magnús Már Einarsson
Óli Gott leystur undan samningi hjá Keflavík
Óli Gott hefur verið leystur undan samningi.
Óli Gott hefur verið leystur undan samningi.
Mynd: Magnús Már Einarsson
Ólafur Gottskálksson markvörður Keflvíkinga hefur verið leystur undan samningi hjá liðinu en þetta staðfesti Rúnar Arnarson formaður knattspyrnudeildar liðsins við fréttaritara Fótbolta.net í hádeginu. Rúnar sagði aðspurður um ástæðu þess að Ólafur var leystur undan samningi "Ég ætla nú ekkert að tjá mig um það en það var talið best fyrir alla aðila og þá sérstaklega félagið að hann yfirgæfi samkvæmið."

Ólafur var ekki með í bikarleiknum gegn Fylki síðastliðinn fimmtudag. Fréttaritari Fótbolta.net spurði Milan Stefán Jankovic ástæðu þess þegar að dregið var í Visa-bikarnum á föstudag og sagði Jankovic að Ólafur hefði ekki mætt á æfingu á mánudeginum og hefði átt að vera á bekknum gegn Fylki. Hann afboðaði sig svo í leikinn og sagðist vera veikur.

Þessa má geta að samkvæmt heimildum Fótbolta.net þá fór Ólafur út til Englands um verslunarmannahelgina en Milan Stefán hafði harðbannað utanlandsferðir um þá helgi.

Magnús Þormar mun taka stöðu Ólafs í marki Keflvíkinga en hann var í markinu gegn Fylki á fimmtudaginn og stóð sig með ágætum.

Árið 1997 fór Ólafur frá félaginu í atvinnumennsku um mitt sumar og Bjarki Guðmundsson tók við markvarðarstöðunni. Það ár varð Keflavík bikarmeistari og átti Bjarki stóran þátt í því svo að hver veit nema að Keflvíkingar verði bikarmeistarar í ár og Magnús verði hetja þeirra.
Slapp
banner