“Gríðarlega sáttur, þetta var mjög erfiður leikur, mér fannst Þórsararnir gefa allt sem þeir áttu í þennan leik, við vissum það fyrir leik að þetta var síðasti séns þeirra til að halda sér í deildinni,” sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir 2-0 sigur á Þór í dag.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 FH
“Mér fannst þeir mjög vel skipulagðir og það gekk mjög erfiðlega að brjóta þá niður en hafðist að lokum. Seinni hálfleikur var örlítið betri, við skoruðum eftir horn og svo eftir aukaspyrnu. Þetta var sanngjarnt og frábært að koma hérna og ná í 3 stig.”
Heimir var fyrirliði FH sem felldi KA á Akureyrarvelli árið 2004. Aðspurður hvort að þetta væri eitthvað sem hann leggði upp með sagði hann hlægjandi:
“Ég var nú reyndar bara að frétta þetta áðan að ég hefði gert það en það er ekkert sem ég er sérstaklega ánægður með og vil hafa á samviskunni en ég verð að lifa með þessu.”
Nánar er rætt við Heimi í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir