Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mán 15. september 2014 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Myndband: Laglegt aukaspyrnumark Gumma Tóta
Gummi Tóta er hörku spyrnumaður.
Gummi Tóta er hörku spyrnumaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Þórarinsson, leikmaður U21-landslið Íslands, skoraði flott mark beint úr aukaspyrnu þegar lið hans Sarpsborg í Noregi vann 2-0 útisigur gegn Sandnes Ulf.

Guðmundur var í byrjunarliði Sarpsborg en fór af velli vegna einhverra meiðsla í seinni hálfleik.

Hannes Þór Halldórsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hannes Þ. Sigurðsson léku allan leikinn fyrir Sandnes en Eiður fékk gult í leiknum.

Hér að neðan má sjá þetta þrusugóða mark Guðmundar gegn Hannesi.

Gudmundur Thorarinsson goal vs. Sandnes - September 2014 from Sportic Players Management on Vimeo.


Athugasemdir
banner
banner
banner