Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. september 2014 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Januzaj setti þrennu fyrir framan þjálfarana
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal og Ryan Giggs horfðu saman á U21 lið Manchester United leggja Sunderland af velli með fjórum mörkum gegn engu.

Adnan Januzaj var ekki í byrjunarliðinu gegn QPR en gerir sterkt tilkall til þess að vera með á móti Leicester City næstu helgi enda skoraði hann þrjú mörk í leiknum gegn Sunderland.

Luke Shaw og Anderson tóku þátt í leiknum enda eru þeir að ná sér eftir meiðsli.

Shaw gat ekki verið með gegn QPR og var Marcos Rojo notaður í hans stað á meðan Anderson var ekki í hóp þrátt fyrir fjarveru Michael Carrick og Marouane Fellaini.
Athugasemdir
banner
banner
banner