Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. september 2014 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Þjálfari Hamburger SV rekinn eftir þrjár umferðir
Slomka var rekinn eftir tap gegn Hannover, sínu fyrrum félagi.
Slomka var rekinn eftir tap gegn Hannover, sínu fyrrum félagi.
Mynd: Getty Images
Mirko Slomka tók við Hamburger SV í febrúar og tókst að bjarga liðinu frá falli á síðasta tímabili en hefur nú verið rekinn eftir sjö mánaða starf.

HSV byrjaði þýska tímabilið á jafntefli og tveimur tapleikjum án þess að hafa tekist að skora mark.

Liðið tapaði fyrir Hannover með tveggja marka mun og var það dropinn sem fyllti mælinn og var Slomka rekinn eftir leikinn.

Fyrir tapið gegn Hannover hafði HSV tapað með þremur mörkum fyrir SC Paderborn 07 á heimavelli.
Athugasemdir
banner
banner