Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. september 2014 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gerrard: Fólk má skrifa um Balotelli - Hann er einn af okkur
Balotelli er partur af liðsheildinni.
Balotelli er partur af liðsheildinni.
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að Mario Balotelli sé partur af liðsheildinni hjá Liverpool og að liðsfélagarnir styðja við hann.

Þá telur Gerrard að félagið eigi heima í Meistaradeildinni og segir það vonbrigði ef liðið kemst ekki í 8-liða úrslit.

,,Ef fólk vill skrifa sögur um hann og segja frá því hversu brjálaður hann er þá má það alveg, en hann er einn af okkur núna," sagði Gerrard við The Daily Mail.

,,Við höfum boðið hann velkominn með opnum örmum og viljum hjálpa honum að ná árangri. Allir vona að hann slái í gegn.

,,Hann er með frábæra liðsfélaga sem vinna fyrir hann og styðja hann. Hann verður að gera slíkt hið sama fyrir okkur."


Gerrard hélt svo áfram og talaði um Meistaradeildina þar sem hann vill sjá Liverpool komast í það minnsta í 8-liða úrslit, en liðið mætir Ludogorets í fyrstu umferð riðlakeppninnar í kvöld.

,,Ef við dettum út í riðlakeppninni, eða 16-liða úrslitum, verðum við mjög vonsviknir. Við viljum komast eins langt og hægt er. Við eigum heima í Meistaradeildinni og það er á okkar ábyrgð að gera góða hluti þar."
Athugasemdir
banner
banner
banner