Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 17. september 2014 08:30
Alexander Freyr Tamimi
Arteta: Ert dauður ef þú gerir svona mistök gegn Dortmund
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, miðjumaður Arsenal, segir að frammistaða liðsins gegn Borussia Dortmund í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi hafi einfaldlega ekki verið nógu góð.

Arsenal þurfti að sætta sig við 2-0 tap gegn lærisveinum Jurgen Klopp í sínum fyrsta leik í keppninni og viðurkennir Arteta að liðið verði að gera betur.

,,Við mættum toppliði á einum af erfiðustu leikvöngum Evrópu," sagði Arteta við Sky Sports.

,,Við vissum að þeir myndu setja pressu á okkur frá byrjun. Það var afskaplega klaufalegt hjá okkur að fá á okkur mark þegar það voru 20 sekúndur eftir af fyrri hálfleik."

,,Að lenda 1-0 undir á þessum stað er mjög erfitt því þeir eru frábærir í skyndisóknum. Við stóðum okkur ekki nógu vel í kvöld, við réðum einfaldlega ekki við þá."

,,Við gáfum þeim boltann allt of oft á okkar eigin vallarhelmingi. Þegar þú gerir það gegn svona liði ertu dauður. Þeir voru betri í þessum leik."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner