Þýskalandsmeistarar FC Bayern unnu dramatískan 1-0 sigur á Manchester City í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu.
Liðin mættust á Allianz Arena í E-riðli og leit sigurmarkið dagsins ljós á 89. mínútu. Þar var að verki Jerome Boateng sem skoraði með frábæru marki gegn sínu gamla félagi. Í sama riðli vann Roma 5-1 stórsigur þar sem Gervinho fór á kostum og skoraði tvö mörk og lagði upp annað.
Liðin mættust á Allianz Arena í E-riðli og leit sigurmarkið dagsins ljós á 89. mínútu. Þar var að verki Jerome Boateng sem skoraði með frábæru marki gegn sínu gamla félagi. Í sama riðli vann Roma 5-1 stórsigur þar sem Gervinho fór á kostum og skoraði tvö mörk og lagði upp annað.
Í F-riðli vann Barcelona skoraði Gerard Pique eina mark leiksins í sigri á APOEL á meðan Kolbeinn Sigþórsson lék í klukkustund í 1-1 jafntefli Ajax gegn PSG á heimavelli.
Á Stamford Bridge gerði Chelsea 1-1 jafntefli gegn Schalke í G-riðli. Cesc Fabregas kom Chelsea yfir í fyrri hálfleik, en framherjinn Klaas-Jan Huntelaar skoraði jöfnunarmark þýska liðsins.
Þá fór Porto á kostum á heimavelli gegn BATE frá Hvíta-Rússlandi. Yacine Brahimi gerði þar þrennu í sínum fyrsta Meistaradeildarleik, en lokatölur urðu 6-0 fyrir Porto sem fer því á toppinn á G-riðli. Í sama riðli gerði Athletic og Shakhtar Donetsk markalaust jafntefli.
E-riðill:
Roma 5 - 1 CSKA
1-0 Juan Manuel Iturbe ('6 )
2-0 Gervinho ('10 )
3-0 Maicon ('20 )
4-0 Gervinho ('31 )
5-0 Sergei Ignashevich ('50 , sjálfsmark)
5-1 Ahmed Musa ('82 )
Bayern 1 - 0 Manchester City
1-0 Jerome Boateng ('89 )
F-riðill:
Barcelona 1 - 0 APOEL
1-0 Gerard Pique ('28 )
Ajax 1 - 1 Paris Saint Germain
0-1 Edinson Cavani ('14 )
1-1 Lasse Schone ('74 )
G-riðill:
Chelsea 1 - 1 Schalke 04
1-0 Cesc Fabregas ('11 )
1-1 Klaas Jan Huntelaar ('62 )
Maribor 0 - 0 Sporting
H-riðill:
Porto 6 - 0 BATE
1-0 Yacine Brahimi ('5 )
2-0 Yacine Brahimi ('32 )
3-0 Jackson Martinez ('37 )
4-0 Yacine Brahimi ('57 )
5-0 Adrian Lopez ('61 )
6-0 Vincent Aboubakar ('76 )
Athletic 0 - 0 Shakhtar D
Athugasemdir