Danny Rose er ekki í leikmannahópi Tottenham sem mætir Partizan frá Serbíu í Evrópudeildinni í kvöld.
Fyrir tveimur árum lenti Rose í miklum kynþáttaníð í Serbíu, en Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segir það ekkert koma málinu við.
,,Nei það er ekki ástæða þess að hann kom ekki með. Ég veit hverju hann lenti í fyrir tveimur árum en það er ekki ástæðan," sagði Pochettino.
Búist er við að þeir Michel Vorm og Federico Fazio muni klæðast treyju Tottenham í fyrsta sinn í kvöld. Þá er einnig búist við því að hinn 18 ára gamli Milos Veljkovic fái tækifærið í leiknum.
Athugasemdir