Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 18. september 2014 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Guardian 
Stjóri Watford á sjúkrahúsi
Mynd: Getty Images
Oscar Garcia, þjálfari Watford, hefur dvalið á sjúkrahúsi frá því um helgina eftir að hafa fundið fyrir verk fyrir brjósti.

Garcia stýrði Watford í fyrsta sinn um helgina og vann liðið þá 1-0 sigur á Charlton. Hann var hinsvegar ekki á hliðarlínunni í sigri á Blackpool á þriðjudaginn og óljóst er hvenær hann snýr aftur til starfa.

Í tilkynningu frá Watford kemur fram að Garcia líði vel og að sigur liðsins á Blackpool hafi kætt hann mjög.

Ruben Martinez og Javier Pereira stýra Watford í fjarrveru Garcia.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner