þri 10. ágúst 2004 01:27
Haraldur Hreinsson
Murphy ekki til Tottenham
Danny Murphy fer hvergi - enn sem komið er
Danny Murphy fer hvergi - enn sem komið er
Mynd: Haraldur Hreinsson
Fréttir undanfarna daga hafa hljóðað upp á það að miðvallarleikmaður Liverpool, Danny Murphy, sé á leiðinni til Lundúnaliðsins, Tottenham Hotspurs. Nú hefur Murphy hinsvegar lokað á þau félagaskipti þar sem forráðamenn Tottenham treystu sér ekki til að lofa honum föstu sæti í byrjunarliði á komandi leiktíð.

Á heimasíðu Tottenham sagði: ,,Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, hefur félagið verið í samningaviðræðum við Liverpool varðandi Danny Murphy. Félagið hefur nú dregið sig út úr þeim viðræðum í kjölfarið af fundi með leikmanninum. Við getum gefið það upp að fast byrjunarliðssæti var stór þáttur í hans ákvörðun og nú óskum við honum alls hins besta í framtíðinni."

Murphy hefur einnig verið orðaður við erkifjendur Liverpool, Everton, en fjárhagsstaða blástakkanna leyfði ekki að fjármagni yrði eytt í kaup á leikmanninum. Allt er því við sama heygarðshornið hjá Murphy og ef fer sem horfir gæti hann enn verið hjá Liverpool um næstu helgi þegar enska úrvalsdeildin hefst fyrir alvöru.
Slapp
banner