lau 20. september 2014 22:40
Grímur Már Þórólfsson
Van Gaal svarar Guardiola
Louis van Gaal
Louis van Gaal
Mynd: Getty Images
Louis van Gaal hefur svarað Joseph Guardiola á þá vegu að allir leikmenn vilji ganga til liðs við Manchester United.

Joseph Guardiola sagði í vikunni að leikmenn Bayern Munich væru of dýrir fyrir Man United og enginn af leikmönnum hans hafi haft áhuga á að ganga til Man Utd.

Van Gaal segist þó ekki vita hvað Guardiola sé að tala um.

„Þetta er er ekki áhugavert sem Guardiola sagði. Ég tel að allir leikmenn sem ég hef haft samband við vilji fara til Man Utd.“

„Það er ótrúlegt, jafn vel þó að liðið sé ekki í meistaradeildinni eru þeir tilbúnir til að koma.“

„Það kemur á óvart en sýnr hversu stórt félagið er. Þeir trúa á verkefnið sem við vorum að byrja, þó að eins og ég hef sagt þarfnast það tíma,“ sagði van Gaal.

Van Gaal þekkir Guardiola frá því að hann þjálfaði Barcelona en hann gerði hann meðal annars að fyrirliða liðsins. Þá hefur Guardiola viðurkennt að hollendingurinn hafi haft mikil áhrif á þá hugmyndafræði sem hann hefur tileinkað sér sem þjálfari.



Athugasemdir
banner
banner