Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 22. september 2014 21:34
Ívan Guðjón Baldursson
Kouyate frá í sex vikur eftir sigurinn á Liverpool
Mynd: Getty Images
Cheikhou Kouyate, miðjumaður West Ham, verður frá í sex vikur eftir að hafa meiðst á nára í 3-1 sigri gegn Liverpool um helgina.

Kouyate byrjaði leikinn og meiddist undir lok leiksins en fór ekki af velli vegna þess að skiptingar liðsins voru búnar.

Kouyate kom til Hamranna frá belgíska félaginu Anderlecht á 7 milljónir punda í júní og verður frá þar til í nóvember.

Búist er við að Senegalinn ungi verði leikfær gegn Aston Villa 8. nóvember. Hann hefur verið frábær á tímabilinu og byrjað alla leiki West Ham sem er í áttunda sæti deildarinnar með sjö stig.
Athugasemdir
banner
banner