Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. september 2014 19:54
Alexander Freyr Tamimi
Spánn: Ronaldo með fjögur í sigri Real Madrid
Cristiano Ronaldo fagnar einu marka sinna í kvöld.
Cristiano Ronaldo fagnar einu marka sinna í kvöld.
Mynd: Getty Images
Real Madrid 5 - 1 Elche
0-1 Edu Albacar ('15 , víti)
1-1 Gareth Bale ('20 )
2-1 Cristiano Ronaldo ('28 , víti)
3-1 Cristiano Ronaldo ('32 )
4-1 Cristiano Ronaldo ('80 , víti)
5-1 Cristiano Ronaldo ('90 )

Cristiano Ronaldo stal senunni þegar Real Madrid vann sannfærandi 5-1 sigur gegn Elche í spænsku La Liga í kvöld.

Portúgalski landsliðsmaðurinn skoraði fjögur af mörkum Real Madrid og er þar með búinn að skora sjö mörk í síðustu tveimur leikjum.

Elche komst að vísu yfir úr vítaspyrnu frá Edu Albacar eftir stundarfjórðung, en þó liðu einungis fimm mínútur þar til Gareth Bale hafði jafnað metin.

Ronaldo lét svo til sín taka og skoraði tvö mörk fyrir leikhlé og tvö eftir leikhlé, en hann skoraði af vítapunktinum í tvígang.

Madrídingar eru nú í 4. sæti deildarinnar með níu stig eftir fimm leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner