þri 23. september 2014 22:30
Alexander Freyr Tamimi
Vine-myndband: Torres skoraði í fyrsta byrjunarliðsleik
Mynd: Getty Images
Fernando Torres hefur ekki verið þekktur fyrir mikla markaskorun frá því að hann gekk til liðs við Chelsea frá Liverpool fyrir 50 milljónir punda.

Spænski landsliðsmaðurinn náði sér aldrei á strik í Lundúnum og hefur nú verið lánaður til AC Milan á Ítalíu.

Torres var í fyrsta skiptið í byrjunarliði AC Milan í kvöld gegn Empoli, en leikurinn er enn í gangi.

Framherjinn tók sig til og skoraði sitt fyrsta mark með glæsilegum skalla aftur fyrir sig, virkilega vel gert hjá pilti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner