þri 23. september 2014 22:01
Alexander Freyr Tamimi
Rodgers: Þessi leikur hefur engin áhrif á grannaslaginn
Brendan Rodgers.
Brendan Rodgers.
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, var ánægður með sigur sinna manna gegn Middlesbrough í deildabikarnum í kvöld.

Liverpool vann ótrúlegan 14-13 sigur í vítaspyrnukeppni, en lokatölur eftir framlengingu voru 2-2.

,,Það var mjög mikilvægt að ná sigrinum og leikmennirnir eru mjög ánægðir inni í klefa," sagði Rodgers.

,,Við erum í hattinum og það er allt sem við viljum. Þetta hefur ekki áhrif á grannaslaginn gegn Everton um helgina." 

,,Það er stór leikur fyrir okkur, við þurfum að koma okkur af stað í deildinni."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner