banner
   þri 30. september 2014 16:30
Magnús Már Einarsson
Christian Poulsen semur við FC Kaupmannahöfn (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Christian Poulsen hefur skrifað undir eins árs samning við FC Kaupmannahöfn þar sem hann verður meðal annars liðsfélagi Rúriks Gíslasonar.

Hinn 34 ára gamli Poulsen á langan feril að baki en hann var síðasta á mála hjá Ajax í Hollandi.

Poulsen þekkir til hjá FCK en hann lék með liðinu í tvö ár skömmu eftir aldamót.

Poulsen hefur síðan þá leikið með Schalke, Sevilla, Juventus, Liverpool og Evian í Frakklandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner