Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 30. september 2014 14:33
Grímur Már Þórólfsson
Herrera með brákað rifbein
Þeir Herrera og Rooney verða fjarri góðu gamni næstu helgi
Þeir Herrera og Rooney verða fjarri góðu gamni næstu helgi
Mynd: Getty Images
Ander Herrera, leikmaður Manchester United, verður líklegast frá í nokkrar vikur eftir að hafa brákað rifbein gegn West Ham um helgina.

Miðjumaðurinn fór útaf á 74. mínútu í 2-1 sigrinum á West Ham um helgina og núna hefur verið staðfest á heimasíðu félagsins að leikmaðurinn brákaði rifbein.

Það þýðir að hann verður líklegast frá í nokkrar vikur en mikið er um meiðsli í herbúðum United.

Herrera er áttundi leikmaður Man Utd á sjúkralistanum og þá er fyrirliði liðsins Wayne Rooney kominn í þriggja leikja bann eftir að hafa verið rekinn útaf um helgina.

Líklega koma Juan Mata og Fletcher inn í liðið í stað þeirra Herrera og Rooney en Januzaj er einnig möguleiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner