Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 02. október 2014 08:30
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Telegraph 
Langt í endurkomu Kevin Mirallas
Kevin Mirallas.
Kevin Mirallas.
Mynd: Getty Images
Kevin Mirallas, leikmaður Everton, tognaði í læri í leiknum gegn Liverpool um síðustu helgi og gæti verið langt þar til Belginn snýr aftur á völlinn.

Meiðslin virtust alvarleg við fyrstu sýn og hefur Roberto Martinez, stjóri þeirra bláklæddu, staðfest að hann muni ekki koma við sögu á næstunni.

,,Eins og er er erfitt að segja því bólgan á svæðinu leyfir okkur ekki að meta þetta nákvæmlega. En það er augljóst að meiðslin munu halda honum utan vallar í dálítinn tíma," sagði Martinez.

Enskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Mirallas þurfi allt að átta vikur til að jafna sig.
Athugasemdir
banner
banner
banner