Fótbolti.net stóð fyrir beinni útsendingu frá lokadegi Pepsi-deildarinnar á laugardaginn og var hápunkturinn að sjálfsögðu úrslitaleikur FH og Stjörnunnar.
Benedikt Bóas Hinriksson og Elvar Geir Magnússon fylgdust með leiknum og niðri á sjálfum vellinum var Magnús Már Einarsson sem gjörsamlega missti sig í stemningunni.
Í lýsingunni má líka heyra frá því þegar Kassim "The Dream" ætlar að ráðast að Kristni Jakobssyni dómara.
Athugasemdir