Daley Blind segir að það sé frábær tilfinning að spila fyrir Manchester United og telur að liðið muni ná góðum árangri undir stjórn Louis van Gaal.
Hollenski landsliðsmaðurinn kom til United frá Ajax í sumar og kann hann vel við lífið á Englandi.
Hollenski landsliðsmaðurinn kom til United frá Ajax í sumar og kann hann vel við lífið á Englandi.
,,Það var nóg að gerast hjá mér í sumar og margt sem ég mun aldrei gleyma, en mér hefur tekist að einbeita mér að fótboltanum," sagði Blind.
,,Að spila leiki fyrir United er frábær tilfinning, ég nýt þess í botn. Það er líka frábært að vera á æfingasvæðinu með svona góðum leikmönnum."
,,Byrjunin var erfið hjá okkur en undanfarnir leikir hafa verið góðir, utan við tapið úti gegn Leicester. Ég sé framfarir í liðinu."
Athugasemdir