Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. október 2014 22:30
Alexander Freyr Tamimi
Sunderland mun endurgreiða stuðningsmönnum
Vito Mannone.
Vito Mannone.
Mynd: Getty Images
Fjölmörg ensk götublöð munu á morgun birta sömu söguna varðandi 8-0 tap Sunderland gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Sunderland var gersamlega niðurlægt á útivelli gegn lærisveinum Ronald Koeman og nú hefur markvörðurinn Vito Mannone greint frá því að félagið hyggist endurgreiða stuðningsmönnum sem fóru á völlinn.

Samkvæmt The Sun borguðu tæplega 2.600 stuðningsmenn um 175 pund fyrir ferðina til Southampton, til þess eins að verða vitni að algerri niðurlægingu.

Er haft eftir Mannone að allt verði gert til þess að endurgreiða stuðningsmönnunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner