sun 15. ágúst 2004 14:27
Elvar Geir Magnússon
Moyes viss um að Rooney verði áfram
Mynd: Elvar Geir Magnússon
David Moyes framkvæmdarstjóri Everton segir að Wayne Rooney sé við það að skrifa undir nýjan samning við félagið. "Ég er viss um að það verði gengið frá þessu bráðlega. Við höfum átt góðar samræður við hann að undanförnu og ég er viss um að hann skrifi undir samning." segir Moyes.

Fréttir herma að um sé að ræða fimm ára samning. Líklega verður innifalið í honum að Rooney megi fara ef lið býður 25 milljónir punda í hann en reyndar vill Everton hafa það 30 milljónir. Moyes vonast eftir að Rooney skrifi sem fyrst undir til að stöðva umræðurnar um þetta mál sem séu félaginu ekki til góða.

Slapp
banner